Friðurinn á hvítasunnuhátíðinni árið 2005 var rofinn með frétt af óhugnanlegu manndrápi í fjlbýlishúsi í Kópavogi. Eins og stundum áður virtist það hafa verið óþarfi að þetta gerðist og erfitt að skilja ástæður þess. En síðar kom í ljós að þarna hfðu legið að baki aldagamlir siðir og hefðir fjarlægs menningarsamfélags og trúarbragða sem Íslendingum voru ókunnug. Það var ekki auðvelt að setja sig inn í þau sterku áhrif sem slíkur arfur hefur á fólk sem elst upp við þessar aðstæður.